Þriðjudaginn 29.sept kl 20 hefst ljósmyndanámskeið í húsi Geðhjálpar Túngötu 7 fyrir fólk með geðraskanir. Námskeiðið verður í 5 skipti og er það frítt.
Um leiðbeinandann:
Baldur Már Pétursson lærði ljósmyndun í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað í 4 ár við ljósmyndun, stækkanir á myndum og myndvinnslu. Baldur hefur sjálfur glímt við þunglyndi og leitaði hann í sjálfshjálparhóp hér hjá Geðhjálp til að fá stuðning sem varð honum mikil hjálp. Vill hann með þessu framtaki sínu sem leiðbeinandi gefa til baka það sem hann fékk hér hjá okkur.
Dagsetningar: 29.sept, 6.okt, 13.okt, 20.okt, 27.okt. Áhersla verður lögð á að nemendur þjálfi með sér auga fyrir því hvað gerir góða ljósmyd góða. Farið verður yfir stillingar á myndavélinni, mynduppbyggingu, lýsingu og skerpu ( fókus í myndum ).
Námskeiðið byggist á fræðsu, umræðum um ljósmyndir, farið verður í vettfangsferðir í miðbæinn og æfir hver og einn sig í að taka myndir.
Á námskeiðið komast allt að 15 manns.
Skráning á námskeiðið: hafið samband við Sigríði hjá Geðhjálp: 570-1704 eða með tölvupóst: sirry@gedhjalp.is




