Aðstandendur eru oft þeir sem eru hvað virkastir í starfi Geðhjálpar, hvort sem þeir eru félagsmenn eða styrktaraðilar. Þeir bera einnig hitann og þungann af veikindum sinna nánustu. Margs konar vandi getur skapast við geðræn veikindi, m.a. í samskiptum fjölskyldumeðlima, hegðun og félagslegu samneyti. Vandi sem þessi tekur oft mörg ár að þróast en verður á endanum illviðráðanlegur. Til eru margar lausnir sem henta misvel hverjum aðstæðum. Mikilvægast er þó að gera sér grein fyrir hvernig í pottinn er búið. Þeir sem búa lengi við óeðlileg samskipta- og hegðunarmynstur verða oft svo samdauna þeim að þeir átta sig ekki á hve skemmandi þau eru fyrr en allt er komið í óefni. Meðvirkni er t.a.m. dæmi um óheilbrigð hegðunarmynstur og hugarfar sem getur myndast í fjölskyldum þar sem geðröskun fyrirfinnst. |
Upplýsingar fyrir aðstandendur




