Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
miðvikudagur, 8 september 09 2010
A A A
Um Geðhjálp



Geðhjálp er hagsmunasamtök sem stofnuð voru þann 9. október 1979. Þeim er ætlað að gæta hagsmuna þeirra sem þurfa eða hafa þurft aðstoð vegna geðrænna vandamála, aðstandenda þeirra og annarra sem láta sig geðheilbrigðismál varða. Tilgangur félagsins er að bæta hag þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða svo og aðstandenda þeirra.

Að framangreindum markmiðum er unnið m.a. með því að:

  • Sjá til þess að jafnræðisregla stjórnarskrárinnar sé virt og þeim mannréttindasáttmálum sem Ísland á aðild að sé framfylgt
  • Að efla alla forvarnarvinnu og umbætur á sviði geðheilbrigðismála með fræðslu og vitundarvakningu og stuðla m.a. þannig að því að draga úr fordómum
  • Að stuðla að endurbótum í þjónustu við geðsjúka og þá sem eru með geðræn vandamál, innan og utan stofnana
  • Að gera tillögur í þessum efnum og skapa umræðu um þau í samfélaginu
  • Að efla gagnrýna og málefnalega umræðu um geðheilbrigðisþjónustu og þann grundvöll sem hún hvílir á
  • Að stuðla að því að þeim sem eru með geðræn vandamál verði búin skilyrði til að njóta hæfileika sinna, menntunar og starfsorku
  • Að hafa samvinnu við önnur félagasamtök og hópa er vinna að sömu eða svipuðum markmiðum, eða gerast aðili að þeim
  • Að berjast fyrir aukinni þjónustu við geðfatlaða utan stofnana í formi persónulegrar liðveislu og nútímalegra búsetuúrræða

Geðhjálp er með aðsetur að Túngötu 7, 101 Reykjavík. Dagleg starfsemi hússins miðar að því að gefa gestum tækifæri til að rjúfa félagslega einangrun, þroska hæfileika sína og njóta fræðslu og stuðnings af ýmsu tagi.

Geðhjálp er háð stuðningi einstaklinga, félaga og fyrirtækja til að viðhalda starfsemi sinni. Án stuðnings ykkar er starf okkar í hættu. Því er mikilvægt að þið veitið okkur stuðning bæði í formi þess að gerast félagsmenn sem og að leggja okkur fjárhagslegt lið.

Þjónustukort
Dagatal
« Oktober - 2010 »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 30 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 1 2 3 4 5 6
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp