Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
miðvikudagur, 8 september 09 2010
A A A
Almennt um meðferðarúrræði

 

Þannig er því farið að engir tveir upplifa þá þjónustu sem þeir njóta á sama hátt, þetta á líka við um meðferðarúrræði. Að finna sér meðferðaraðila er eins og að finna sér góða skó, með fullri virðingu fyrir meðferðaraðilum. Meðferð er oft langt ferðalag og brýnt er að þjónustuþeganum líki við meðferðaraðilann.

Þessi staðreynd er hornsteinn í þeirri afstöðu Geðhjálpar að mæla ekki með ákveðnum meðferðaraðila. Þeir sem leita sér meðferðar eru hvattir til að vera virkir í meðferð sinni, skrifa hjá sér spurningar, aukaverkanir lyfja, vangaveltur um aðferðir og síðast en ekki síst vera tilbúnir til að endurskoða tilgang og eðli meðferðarinnar. Ekki má gleyma að gera þá sjálfsögðu kröfu á meðferðaraðilann að hann / hún hlusti og komi til móts við þarfir þess sem er í meðferð.

Vakin er athygli á því að án virkrar þátttöku í meðferð næst takmarkaður árangur.

Þjónustukort
Dagatal
« Oktober - 2010 »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 30 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 1 2 3 4 5 6
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp