Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Geðdeild FSA
Staðsetning Eyrarlandsvegur. Sími 463-0100, neyðarsími er 848-2600.
Geðdeild skiptist í þrjár undirdeildir, þ.e. bráðamóttökudeild, dagdeild og göngudeild. Bráðamóttökudeildin, sem staðsett er á fyrstu hæð tengibyggingar sjúkrahússins, hefur yfir að ráða 10 sólarhringsrýmum og einu dagvistarrými. Dagdeildin er hins vegar staðsett að Skólastíg 7 og eru þar 8 rými sem nýtast fyrir 12-14 sjúklinga í senn.
Heimasíða: Geðdeild FSA
Landspítalinn
Landspítalinn sinnir allflestum þeim sem þarfnast innlagnar vegna geðrænna vandamála. Að meginstofni skiptist sú þjónusta í tvennt, geðdeildina að Hringbraut og síðan Klepp. Að auki eru minni deildir staðsettar á nokkrum stöðum um borgina. Sumar deildir koma fyrir oftar en einu sinni í upptalningunni hér að neðan sökum þess að þær sinna fleiri en einni tegund þjónustu.
Fulltrúi notenda
Fulltrúa notenda hefur aðsetur á geðsviði LSH hægt er að hafa samband í síma: 543-4081 og 824-5315.
Staða fulltrúa notenda var sett á laggirnar árið 2006 og tók fulltrúinn sæti í gæðaráði geðsviðs. Tilgangur með sköpun þessa stöðugildis er í megindráttum sem hér segir:
- Efla notendaþekkingu á geðsviði LSH hjá starfsfólki sviðsins
- Bæta ímynd, þjónustu og viðmót á geðsviði LSH
- Sýna fram á að fyrrverandi notendur eigi fullt erindi í vinnu með fagfólki á geðheilbrigðisstofnun
- Auka samvinnu við notendur þjónustu geðsviðs LSH
Auka formlega samvinnu gæðaráðs geðsviðs við notendur.
Heimasíða: Fulltrúi notenda
Tölvupóstur: bergbo(hja)landspitali.is
Landspítalinn að Hringbraut – bráðaþjónusta
Almenn móttökugeðdeild. Deild 32A
Staðsetning önnur hæð í A - álmu í geðdeildarbyggingu við Hringbraut. Vaktsíminn er 543-4028, sími deildarritara er 543-4026, sími deildarstjóra er 543-4030
Móttöku- og meðferðarþjónusta geðsviðs, fyrir þá sem eru eldri en 18 ára, er við Hringbraut. Þar er tekið á móti bráðveikum sjúklingum sem þurfa á innlögn að halda. Meðferðin getur verið fjölþætt og miðast við þarfir hvers sjúklings. Lögð er áhersla á að greina líffræðilega, sálræna og félagslega þætti. Stefnt er að heildrænni þjónustu þar sem sjúklingur og fjölskylda hans taka þátt í að efla heilbrigði.
Heimasíða: Almenn móttökugeðdeild
Almenn- og bráðamóttökugeðdeild. Deildir 32C og 32CB
Staðsetning önnur hæð í C - álmu í geðdeildarbyggingu við Hringbraut. Vaktsími er 543-4423 og 543-4430, sími deildarritara er 543-4036, sími deildarstjóra er 543-4437.
Móttöku- og meðferðarþjónusta geðsviðs, fyrir þá sem eru eldri en 18 ára, er við Hringbraut. Þar er tekið á móti bráðveikum sjúklingum sem þurfa á innlögn að halda. Meðferðin getur verið fjölþætt og miðast við þarfir hvers sjúklings. Lögð er áhersla á að greina líffræðilega, sálræna og félagslega þætti. Stefnt er að heildrænni þjónustu þar sem sjúklingur og fjölskylda hans taka þátt í að efla heilbrigði.
Heimasíða: Almenn og bráðamóttökudeild
Almenn móttöku- og meðferðargeðdeild. Deild 33C
Staðsetning: 3. hæð C-álmu í geðdeildarbyggingu við Hringbraut. Vaktnúmer: 543-4048, sími ritara: 543-4047, sími deildarstjóra 543-2195.
Deild 33C er sólarhringsdeild sem rúmar 15 sjúklinga. Auk þess er gert ráð fyrir 2 dagsjúklingum. Flestir leggjast inn í gegnum bráðamóttöku geðdeildar. Á deildinni er veitt fjölfagleg meðferð við almennum geðsjúkdómum auk þess sem deildin sérhæfir sig í þjónustu við konur í fæðingarþunglyndi. Deildin starfar að sérhæfðu þróunarverkefni um fjölskylduhjúkrun.
Heimasíða: Almenn móttöku og meðferðargeðdeild
Ferli- og bráðaþjónusta. Deild31 E
Staðsetning: Geðdeildarbyggingin við Hringbraut. Síminn er 543-4050 á opnunartíma, sími skiptiborðs Landspítala er 543-1000, sími vakthafandi hjúkrunarfræðings 896-1539
Móttaka eru öllum opin sem eiga við bráða geðræna erfiðleika að stríða. Í bráðamóttöku fer fram fyrsta greining og sjúklingnum síðan vísað áfram til frekari meðferðar. Stundum getur viðkomandi þurft á innlögn að halda en að öðrum kosti er vísað til móttökuteymis göngudeildar eða áfengis- og vímuefnateymis eða til úrræða utan stofnunarinnar. Viðtöl í bráðaþjónustu eru að öllu jöfnu fremur stutt.
Heimasíða: Ferli- og bráðaþjónusta
Móttökuteymi áfengis og vímuefnameðferðar: Deild 32E
Staðsetning Geðdeildarbygging við Hringbraut, 1. og 2. hæð. Sími: 543-4050, sími skiptiborðs Landspítala er 543-1000.
Móttökuteymi göngudeildar: Deild 31 E
Staðsetning: Geðdeildarbygging við Hringbraut, 1., 2. og 3. hæð. Sími: 543-4050, sími skiptiborðs Landspítala er 543-1000.
Móttökuteymið kemur að greiningu og veitir fyrstu meðferð þeim einstaklingum sem ekki þurfa á innlögn að halda. Meðferðin í teyminu er alla jafna skammtímameðferð, oftast í 6-10 vikur. Tilvísanir í teymið koma frá bráðaþjónustu geðsviðs, frá öðrum læknum og fagfólki á LSH, frá heilsugæslunni, félagsþjónustunni og öðru fagfólki utan spítalans, s.s. sjálfstætt starfandi geðlæknum og sálfræðingum. Ekki er hægt að panta tíma í teymið án tilvísunar, en ef málið þolir ekki bið er einstaklingum bent á að leita beint á bráðaþjónustu geðsviðs.
Móttökuteymi göngudeildar er samstarfshópur geðlækna, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa.
Heimasíða: Móttökuteymi göngudeildar
Landspítalinn að Hringbraut – göngudeildarþjónusta Deild 31E
Staðsetning 1. hæð í geðdeildarbyggingu við Hringbraut. Símavakt: 543-4050, sími deildarstjóra 543-4023.
Göngudeildin veitir fólki þjónustu eftir útskrift af geðdeildum í samráði við þann meðferðaraðila sem sinnir eftirfylgd viðkomandi. Einnig veitir deildin bráðaþjónustu og tímabundna meðferð í framhaldi af bráðaþjónustu. Á bráðaþjónustu geðsviðs getur fólk leitað með áríðandi mál af geðrænum toga án þess að eiga pantaðan tíma. Á þeim tíma sem bráðaþjónustan er opin eru hjúkrunarfræðingar viðbúnir því að veita upplýsingar og ráðgjöf í síma.
Heimasíða: Göngudeild Hringbraut
Hvítabandið
Deildin er staðsett í húsi Hvítabandsins, Skólavörðustíg 37. Símnúmer deildarinnar eru 543-4617, 543-4618 og 543-4605.
Dagskráin er fjölþætt og felur í sér m.a. hópmeðferð, listasmiðju, fræðslu, slökun, útivist og félagsfærniþjálfun. Lögð er áhersla á samskipti, alhliða uppbyggingu og sjálfstyrkingu. Meginþunginn í dagskránni fer fram í hópvinnu fyrir hádegi en eftir hádegi eru einstaklingsviðtöl, fjölskyldu- og hjónaviðtöl eftir þörfum. Á deildinni er veitt hefðbundin geðlæknisþjónusta og lögð áhersla á eftirlit og aðhald með lyfjameðferð.
Heimasíða: Hvítabandið
Átröskun Hringbraut
Staðsetning: Geðdeildarbygging við Hringbraut, 1. hæð. Sími: 543-4050.
Við komu í fyrsta sinn eða eftir meðferðarhlé fara einstaklingar í greiningarviðtal þar sem tilgangurinn er að meta vanda og þarfir hvers og eins. Sá fagaðili sem tekur greiningarviðtalið verður aðalmeðferðaraðili og leggur upp meðferðaráætlun í samráði við einstaklinginn. Öllum sem innritast í teymið er boðið að hitta geðlækni og næringarfræðing. Meðferð í teyminu getur verið skammtíma- eða langtímameðferð og fer ýmist fram einstaklingsbundið og/eða í hóp. Áhersla er lögð á að bjóða aðstandendum viðtöl og stuðning eftir því sem við á.
Heimasíða: Átröskun
Tölvupóstfang: Átröskun(hjá)landspítali.is
Göngudeild áfengis- og vímuefna. Deild 32E
Staðsetning er í geðdeildarhúsinu við Hringbraut jarðhæð. Sími móttöku er 543-4050, sími yfirlæknis 543-4097 og sími deildarstjóra er 543-4098.
Móttakan er öllum opin sem eiga við vanda að stríða vegna áfengis og/eða fíkniefna. Þeir sem eru að koma í fyrsta sinn eða eftir meðferðarhlé fara í svo kallað greiningarviðtal. Boðið er upp á ákveðinn fjölda slíkra viðtala á hverjum degi og því kemur fyrir að fólki er bent á að koma næsta dag ef ásókn er mikil.
Heimasíða: Göngudeild áfengis- og vímuefna
BUGL Göngudeild
Staðsetning er við Dalbraut 12. Símanúmer móttöku 543-4300, sími deildarstjóra hjúkrunar er 543-4332 og sími fulltrúa göngudeildar er 543-4322.
Veitir börnum og unglingum 17 ára og yngri þjónustu vegna geð- og þroskaraskana. Á deildinni er stunduð einstaklings-, hóp- og fjölskyldumeðferð. Alltaf er unnið með foreldrum og stundum allri fjölskyldunni. Meðferðartilboð eru fjölbreytt og sniðin að eðli vandans og þörfum skjólstæðinga. Á deildinni er unnið í þverfaglegu samstarfi. Fjölmargir hópar fyrir börn, unglinga og foreldra eru starfræktir. Má þar nefna hópmeðferð fyrir þunglynda unglinga, félagsfærniþjálfun og þjálfunarnámskeið fyrir foreldra.
Heimasíða: BUGL Göngudeild
Endurhæfingarmiðstöð Kleppi
Staðsetning Landspítali Kleppi að Kleppsgörðum. Símanúmer deildar: Viðtalsherbergi: 543 4200, 543 4254 og 543 4254. Sími deildarstjóra 543-4255, símar hjúkrunarfræðinga 543-4256. Alhliða endurhæfing þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar, svo sem iðjuþjálfun, hugræn atferlismeðferð, sjúkraþjálfun. Einnig þjónusta deildina bæði félagsráðgjafar og sálfræðingar. Aldurshópurinn er frá 19 ára og upp úr.
Heimasíða: Endurhæfingarmiðstöð Kleppi.
Landspítalinn – dagmeðferðarþjónusta
Meðferðarstöðin Teigur. Deild 31E
Staðsetning er á jarðhæð í húsi geðdeilda á Landspítala Hringbraut. Símanúmer deildar er í gegnum skiptiborð 543-4710
Áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða meðferð og litið svo á að deildin hafi sérstökum skyldum að gegna gagnvart fólki með geðræn vandamál samfara fíknivanda. Meðferðin byggist á hópvinnu, einstaklingsviðtölum, fyrirlestrum og fjölskylduviðtölum.
Heimasíða: Meðferðarstöðin Teigur
Dagmeðferð Hvítabandið
Deildin er staðsett í húsnæði Hvítabandsins, Skólavörðustíg 37. Símnúmer deildarinnar eru 543-4617, 543-4618 og 543-4605.
Dagmeðferð Hvítabandi hóf starfsemi í núverandi mynd í ársbyrjun 2002. Deildin er ætluð sjúklingum með alvarlegt þunglyndi, geðhvörf, kvíðasjúkdóma og persónuleikaraskanir. Meðferðarform deildarinnar hentar ekki sjúklingum með geðrof, virkan fíknisjúkdóm eða miklar hegðunartruflanir. Deildin tekur við sjúklingum frá móttökuteymi göngudeildar að afloknu mati og greiningu og sinnir jafnframt framhaldsmeðferð sjúklinga eftir útskrift af móttökudeild.
Heimasíða: Dagmeðferð Hvítabandið
BUGL Unglingadeild
Staðsetning er skráð við Dalbraut 12 en stendur í reynd við Leirulæk. Ekið er inn frá Laugalæk. Símanúmer deildar 543-4338 og 543-4320, unglingasími: 543-4357, deildarstjóri 543-4337.
Deildin er 7 daga sólarhringsdeild, ætluð unglingum 13 til 17 ára sem þurfa innlagnar við sökum geðræns vanda. Deildin hefur á að skipa fimm rúmum í sólarhringsdvöl og tvö dagdvalarrými. Á deildinni fer fram fjölskyldu,- umhverfis,- hóp- og einstaklingsmeðferð. Gerð er einstaklingsmiðuð meðferðaráætlun í tengslum við svokallað ábyrgðarstigskerfi en tilgangur þess er að aðstoða unglinginn við að ná sem bestum tökum á hegðun sinni og líðan. Meðan unglingurinn dvelur á deildinni er lögð áhersla á virka þátttöku foreldra/forráðamanna. Unglingar á skólaskyldualdri ganga í Dalbrautarskóla, eða halda áfram í sínum heimaskóla.
Heimasíða: BUGL Unglingadeild.
BUGL Barnageðdeild
Staðsetning deildin er skráð við Dalbraut 12 en stendur í reynd innst við Leirulæk. Símanúmer deildar: Vakt, 543-4310, Þráðlaus sími deildar 543-4358. Símavakt BUGL: 543-4300 opin frá 8:00-16:00 virka daga.
Veitir marrgvíslega þjónustu. Starfsemin skiptist í eina göngudeild og tvær legudeildir, barnadeild og unglingadeild. Tilvísanir sendast á inntökuteymi BUGL. Helstu tilvísunaraðilar eru skólasálfræðingar og heilsugæslulæknar.
Bráðaþjónusta er á BUGL við Dalbraut á dagvinnutíma en sameiginleg með geðsviði á Landspítala Hringbraut á öðrum tímum.
Heimasíða: BUGL Barnageðdeild
Landspítalinn að Hringbraut – endurhæfing
Móttöku og endurhæfingardeild 12 Kleppi
Staðsetning Landspítali Kleppi að Kleppsgörðum. Símanúmer deildar: Viðtalsherbergi: 543 4200, 543 4254 og 543 4254. Sími deildarstjóra 543-4255, símar hjúkrunarfræðinga 543-4256.
Alhliða endurhæfing þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar, svo sem iðjuþjálfun, hugræn atferlismeðferð, sjúkraþjálfun. Einnig þjónusta deildina bæði félagsráðgjafar og sálfræðingar. Aldurshópurinn er frá 19 ára og upp úr.
Heimasíða: Móttöku og endurhæfingardeild 12
Endurhæfingardeild 13 A Kleppi
Staðsetning Landspítali Kleppi að Kleppsgörðum. Símanúmer deildar: Viðtalsherbergi: 543 4200, 543 4254 og 543 4254. Sími deildarstjóra 543-4255, símar hjúkrunarfræðinga 543-4256.
Alhliða endurhæfing þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar, svo sem iðjuþjálfun, hugræn atferlismeðferð, sjúkraþjálfun. Einnig þjónusta deildina bæði félagsráðgjafar og sálfræðingar. Aldurshópurinn er frá 19 ára og upp úr.
Heimasíða: Endurhæfingardeild 13 A Kleppi.
Endurhæfingar- og hjúkrunardeild 14 Kleppi
Staðsetning Landspítali Kleppi að Kleppsgörðum. Símanúmer deildar: Viðtalsherbergi: 543 4200, 543 4254 og 543 4254. Sími deildarstjóra 543-4255, símar hjúkrunarfræðinga 543-4256.
Alhliða endurhæfing þeirra sem nýta sér þjónustu deildarinnar, svo sem iðjuþjálfun, hugræn atferlismeðferð, sjúkraþjálfun. Einnig þjónusta deildina bæði félagsráðgjafar og sálfræðingar. Aldurshópurinn er frá 19 ára og upp úr.
Heimasíða: Endurhæfingar- og hjúkrunardeild 14 Kleppi
Endurhæfing Landspítalans LR
Endurhæfing að Laugarásvegi 71. Símanúmer 543-5181.
Á endurhæfingunni er sólarhrings starfseining sem rúmar samtals 8 innritaða einstaklinga. Að auki eru tvö pláss fyrir dagvistun. Miðað er við að dvalartími sé 12 til 24 mánuðir, en hann ákvarðast samt endanlega af árangri, framvindu og virkni einstaklingsins í endurhæfingunni. Starfsemin sérhæfir sig í meðferð á ungum einstaklingum með geðraskanir, einkum með sjúkdómsgreininguna geðklofa.
Heimasíða: Endurhæfing Landspítalans LR.
Endurhæfing 28
Staðsetning: Hátúni 10A nánar tiltekið í húsi Öryrkjabandalagsins. Deildarsími 543-4225 og 543-4237, sími deildarstjóra 543-4223.
Meðferðin stefnir að því að efla sjúklinga til aukinnar sjálfshjálpar og miðast við þarfir hvers einstaklings. Gengið er út frá markmiðum sem sjúklingur setur sér með dvölinni, þarfagreiningu, mati á styrkleika og áhugasviðum hans. Gerð er einstaklingshæfð áætlun í samráði við sjúkling af faghópi sem starfar við deildina.
Heimasíða: Endurhæfing 28
Auk þess sem tilgreint er hér að ofan þá sinna heimilislæknar, læknar á heilsugæslustöðvum, oft á tíðum geðrænum vanda, sér í lagi í smærri byggðarfélögum. Nánari upplýsingar um starfsemi heilsugæslu er að finna hér að neðan.
Heilsugæslan
Staðsetning er að Álfabakka 16 í Reykjavík og 14 aðrar stöðvar sjá hér. Sími Heilsugæslunnar er 585-1300.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins samanstendur af fimmtán heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Miðstöð heilsuverndar barna, Miðstöð mæðraverndar, Miðstöð tannverndar, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsu-eftirfylgd/iðjuþjálfun og stjórnsýslu Heilsugæsluna.
Hér má finna lista yfir heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu:
Heimasíða: Heilsugæslan
Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir
Hjá Heilbrigðismálaráðuneytinu má nálgast upplýsingar um lög og reglur er gilda yfir þessar stofnanir.
Lista yfir heilbrigðisstofnanir má nálgast hér: Heilbrigðisstofnanir
Lista yfir sjúkrahús má nálgast hér: Sjúkrahús
Lýðheilsustöð
Staðsetning er að Laugavegi 116. Sími 580-0900.
Í aðgerðum Lýðheilsustöðvar er lögð áhersla á mikilvægi góðrar geðheilsu í almennu heilsufari og það sem fólk getur sjálft gert til að hafa jákvæð áhrif á geðheilsuna. Geðrækt byrjaði sem sjálfstætt verkefni. Markmið þess var að fræða fólk um geð-heilbrigði, forvarnir, eflingu geðheilbrigðis og draga úr fordómum. Haustið 2004 hlaut verkefnið viðurkenningu sem sérstaklega vel heppnað verkefni á sviði geðheilbrigðis og færðist sama ár formlega til Lýðheilsustöðvar. Geðhjúkrunarteymi 2 geðhjúkrunarfræðingar og 2 sjúkraliðar.
Heimasíða: Lýðheilsustöð
Reykjalundur
Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS staðsett í Mosfellsbæ. Sími 585-2000
Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Lögð er áhersla á hugræna atferlismeðferð sem meðfeðrarform við geðröskunum.
Heimasíða: Reykjalundur