Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
fimmtudagur, 9 september 09 2010
A A A
Félagslega kerfið



Félagsþjónusta sveitarfélaga fer með mörg af þeim stuðningsúrræðum sem eru í boði fyrir geðfatlaða. Hér að neðan eru upplýsingar um félagsþjónustur landsins auk tengla sem nýtast til að fá nánari upplýsingar.

Félagsþjónusta sveitarfélaga

Nánari upplýsingar fást í Félagsmálaráðuneytinu, Tryggvagötu. S. 545-8100.
Félagsþjónustur á landinu koma að húsnæðismálum sem og öðrum úrræðum er varða málefni fatlaðra, þ.m.t. geðfatlaðra og geðraskanir.
Heimasíða: Félagsþjónusta sveitarfélaga 
Hér má sjá lista yfir félagsmálastjóra, sem gefur einnig upp þær félagsþjónustur sem starfandi eru á landinu.

Velferðarsvið Reykjavíkur

Tenging við hverfisútibú er í gegnum símaver: 411-1111.
Félagsþjónusta Reykjavíkur sinnir málefnum fatlaðra í æ ríkara mæli, þ.m.t. geðfatlaðra.
Heimasíða: Félagsþjónustan í Reykjavík

Trúnaðarmaður fatlaðra

Kristín Júlía Sigurjónsdóttir,  Háaleitisbraut 13, sími: 588-1133; GSM 847-9651.
Hægt er að leita með vanda til trúnaðarmanns, bæði aðstandendur og falaðir. Trúnaðarmaður fatlaðra veitir einnig ráðleggingar um viðeigandi þjónustu.
Heimasíða: Trúnaðarmaður 
Tölvupóstfang: trunadarmadur(hjá)simnet.is

Þjónustueiningar

Áfangaheimili fyrir geðfatlaða á Akureyri.
Staðsetning: Glerárgata 26. Sími: 460-1410.
Dvalarstaður fyrir geðfatlaða þar sem þeir geta búið tímabundið til að undirbúa sjálfstæða búsetu.
Heimasíða: Áfangaheimili á Akureyri

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Austurlandi
Staðsetning: Tjarnarbraut 39b. Sími: 470-0100 
SAust stuðlar að því að fólk fái notið stuðnings og ráðgjafar, auk almenns réttar til þjónustu ríkis og sveitarfélaga. SAust vinnur einnig að því að samræma þá þjónustu sem veitt er af mismunandi aðilum. Rétt á þjónustu eiga þeir sem eru andlega eða líkamlega fatlaðir og þarfnast sérstaks stuðnings af þeim sökum. Með fötlun er einkum átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Fötlun getur einnig verið afleiðing af langvarandi veikindum svo og slysum.
Heimasíða: SAust
Tölvupóstfang: svskaust(hja)eldhorn.is

Þjónustukort
Dagatal
« September - 2010 »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp