Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
fimmtudagur, 9 september 09 2010
A A A
Geðhvörf


Geðhvörf skiptist í fjóra flokka, geðhvörf I, geðhvörf II, Hverfilyndi (Cyclothymia) og geðhvörf ekki nánar tilgreind. Talið er að um 1% þjóðarinnar sé með geðhvörf. Geðhvörf kallast það þegar manneskja sveiflast milli oflætis og þunglyndis, geðhæðar og geðlægðar. En öðru hvoru verður notast við lýsinguna upp þegar talað er um oflæti og niður þegar talað er um þunglyndi hér á eftir.

Helstu einkenni örlyndis eru:

  • Hækkað geðslag, minnkuð svefnþörf og hraðar hugsanir
  • Aukin líkamleg og andleg vellíðan
  • Óþol gagnvart áreiti
  • Oft stutt skil á milli gleði og reiði, ánægju og æsings
  • Oft yfirþyrmandi framkoma, sterk raddbeiting, hratt tal
  • Háar hugmyndir og góð færni í að sannfæra aðra
  • Minnkuð færni í að hlusta á aðra
  • Áberandi hvatvísi
  • Minnkuð dómgreind - óskýr skil á milli eigin hugarheims og raunveruleika

Helstu einkenni þunglyndis eru: 

  • Þreyta og/eða líkamlegir verkir
  • Skortur á frumkvæði
  • Erfiðleikar með að taka ákvarðanir
  • Pirringur og reiði
  • Svefntruflanir
  • Breytingar á matarlyst
  • Breytingar á kynþörf
  • Sjálfsvígshugsanir/sjálfsvígatferli
  • Sjálfsásakanir, vonleysi
  • Tregða i tali og svipbrigðum

Fyrsta geðsveiflan kemur oft í kjölfar aukins álags eða áfalls. Meðalaldur fyrstu einkenna er 20 fyrir bæði konur og karla. Einstaklingsbundið er hve langur tími líður á milli „kasta“. Sumir sveiflast upp og ná jafnvægi en fara síðan niður, aðrir fara aftur upp. Á milli kasta er einstaklingurinn í bata m.ö.o. ekki þjakaður af geðrænum vanda. Geðhvörf eru eins og aðrir geðraskanir einstaklingsbundin veikindi. Sumir veikjast einungis einu sinni á ævinni en algengara er að einstaklingur upplifi endurtekin hringferli. Framgangur geðhvarfa er einstaklingsbundinn og er því erfitt að alhæfa um hversu mörgum geðsveiflum fólk má búast við, hve lengi þær standa yfir og hve langur tími líður á milli þeirra.

Því hefur verið slegið fram að ef viðkomandi er án meðferðar má búast við að meðaltali 7-15 stórum sveiflum um ævina. Sumar rannsóknir benda til þess að einstaklingar upplifi að meðaltali 4 sveiflur á 10 ára tímabili, en sveiflum fækkar með aldri.

Í um 60-70% tilfella fylgjast oflæti og þunglyndi að. Það er að segja ef annað á sér stað þá fylgir hitt. Einstaklingur fær t.a.m. oflætis tímabil og þegar það rjátlast af viðkomandi fylgir þunglyndi. Þannig upplifir einstaklingurinn tilfinningalegan rússíbana á kannski ttiltölulega skömmum tíma. Ljóst er talið að erfðir spila einhvern þátt í líkum á því að einstaklingur þjáist af geðhvörfum. Hér á landi hefur það verið þekkt að í ákveðnum ættum eru fleiri litríkir einstaklingar en í öðrum. Samkvæmt rannsóknum erlendis frá aukast líkur á geðhvörfum um 4-24% ef nánasti ættingi er haldinn geðhvörfum.

Geðhvörf I

Einkennast af a.m.k. einu örlyndiskasti en ekki þarf þunglyndi að hafa komið fyrir hjá viðkomandi. Oft hafa einstaklingar sögu af einu eða fleiri þunglyndistímabilum.
Örlyndisköstin eru ekki betur útskýrð út frá forsendum geðklofa eða afbrigði hans, né heldur að þau sé tilkomin vegna neyslu lyfja.
Greining geðhvarfa 1 fellur svo enn frekar í nokkra flokka eftir forsögu og eðli þeirra einkenna sem komið hafa fram.

Geðhvörf II

Eru mörkuð af örlæti á lægra stigi og skemmri tímabilum en geðhvörf I og jafnframt verða þunglyndistímabilin meira áberandi.

Hverfilyndi

Hér eru „köstin“ örari en jafnframt ekki jafn „há“ né „djúp“. Það er örlætið og þunglyndið varir í skemmri tíma og er mildara en í geðhvörfum I og II. Einstaklingar sem þjakaðir eru af hverfilyndi eiga það til að koma gríðarlega miklu í verk á skömmum tíma en liggja þess á milli í „leti“. Það upplifir þó ekki missi dómgreindar eins og svo algengt er í örlyndi.

Blandað ástand

Einkennist af þunglyndi með stuttum köflum oflætis. Sveiflurnar eru örar, þ.e. einstaklingur getur sveiflast milli örlætis og þunglyndis jafnvel á sama degi í sumum tilfellum. Enda er rætt um að einstaklingur sé með geðhvörf, blandað ástand, ef sveiflurnar standa skemur en tvær vikur

Orsakir geðhvarfa eru ekki alveg ljósar en rannsóknir benda til að um samspil nokkurra þátta sé að ræða. Blönduð meðferðarform gefa hvað bestan árangur, hér er átt við sambland hugrænnar atferlismeðferðar og lyfjameðferðar. Hafa verður í huga að meðferð verður að vera samstarfsverkefni milli meðferðaraðila, sjúklings og aðstandenda hans.

Hannes Jónas Eðvarðsson, sjálfræðingur og félagsráðgjafi tók saman

Nánar má lesa um geðhvörf á vefnum undir leitarorðunum:

Geðhvörf
Bipolar Disorder
Manio depressive

Þjónustukort
Dagatal
« September - 2010 »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp