1. gr.
Félagið heitir Geðhjálp og er félag þeirra, sem láta sig geðheilbrigðismál varða. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík og starfsvettvangur landið allt.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að vinna að geðheilbrigðismálum og bæta hag þeirra, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, barna og fullorðinna, svo og aðstandenda þeirra.
Þessu markmiði verður náð með því, meðal annars:
a) Að efla samtakamátt allra þeirra sem láta sig geðheilbrigðismál varða.
b) Að sjá til þess að jafnræðisregla stjórnarskrárinnar sé virt og þeim mannréttindasáttmálum sem Ísland á aðild að sé framfylgt. Að efla alla forvarnarvinnu og umbætur á sviði geðheilbrigðismála með fræðslu og vitundarvakningu, m.a. til að draga úr fordómum. Að stuðla að endurbótum í þjónustu við geðsjúka og þá sem eru með geðræn vandamál. Að gera tillögur í þessum efnum og skapa umræður um þau í samfélaginu.
c) Að efla gagnrýna og málefnalega umræðu um geðheilbrigðisþjónustu og þann grundvöll sem hún hvílir á.
d) Að stuðla að því að þeir sem eru með geðræn vandamál, verði búin skilyrði til að njóta hæfileika sinna, menntunar og starfsorku.
e) Að hafa samvinnu við önnur félagasamtök og hópa, er vinna að sömu eða svipuðum markmiðum, eða gerast aðili að þeim.
3. gr.
Félagar geta orðið allir þeir einstaklingar sem áhuga hafa á og styðja vilja tilgang félagsins. Kosningarétt og kjörgengi í félaginu hafa allir fullgildir félagsmenn. Fullgildir félagsmenn teljast þeir er skráðir hafa verið í félagið mánuð fyrir aðalfund. Ef félagsbundnir launaðir starfsmenn félagsins, eða starfsemi á vegum þess, ná kjöri til stjórnarsetu, hætta þeir samhliða störfum sínum sem þeir þáðu laun fyrir. Þó er heimilt að gera tímabundinn samning við aðila úr stjórn til ákveðinna starfa eða verkefna á kjörum er geta numið allt að launakjörum framkvæmdastjóra félagsins.
4. gr.
Rekstur félagsins skal tryggður með félagsgjöldum og öðrum þeim úrræðum, sem félagsstjórn ákveður. Hver félagsmaður greiðir árgjald og skulu þau ákveðin á aðalfundi. Árgjöld renna í félagssjóð. Gjalddagi félagsgjalda skal vera hinn 1. maí ár hvert, nema aðalfundur ákveði annað.
5. gr.
Aðalfundur, sem er æðsta vald félagsins, er haldinn í marsmánuði ár hvert, og skal hann boðaður bréflega, svo og með auglýsingu í einu dagblaði með minnst þriggja vikna fyrirvara.
Tillögur um lagabreytingar skulu berast til stjórnar tveim vikum fyrir aðalfund.
Tillögur um framboð til formennsku og stjórnar skulu berast skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.
Aðalfundur er lögmætur, ef löglega er til hans boðað. Fastir dagskrárliðir aðalfundar eru þessir:
1. Tillögur um framboð til formennsku og stjórnar kynntar.
2. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
3. Skýrsla gjaldkera og staðfesting reikninga félagsins fyrir liðið reikningsár.
4. Ákvörðun um félagsgjald næsta árs.
5. Tillögur til lagabreytinga.
6. Kosning formanns.
7. Kosning annarra stjórnarmanna og skoðunarmanna.
8. Önnur mál.
Tillögur til lagabreytinga þurfa 2/3 greiddra atkvæða.
6. gr.
Félagsfundi skal halda þegar stjórn félagsins ákveður eða 15 félagsmenn krefjast þess skriflega og greina fundarefni. Er formanni þá skylt að boða til fundar sem haldinn er innan tveggja vikna frá því að honum barst krafan. Auglýsa skal hann sannarlega fyrir félagsmönnum og tilgreina fundarefni.
7. gr.
Aðalfundi og öðrum félagsfundum stjórnar formaður félagsins eða sérstakur fundarstjóri, sem hann kveður til með samþykki fundarins.
Fundargerð skal færa í gerðarbók félagsins og skrá þar ályktanir fundar og úrslit atkvæðagreiðslna og geta stuttlega annarra fundarmála.
Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á félagsfundum.
8. gr.
Stjórn félagsins er skipuð 6 einstaklingum auk formanns og skulu þeir kosnir á aðalfundi. Formann skal kjósa sérstaklega til tveggja ára í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir 3 í einu til tveggja ára og ganga árlega þrír úr stjórninni á víxl. Einnig skal kjósa 3 varamenn í stjórn til tveggja ára og 2 skoðunarmenn til eins árs. Starfsmenn Geðhjálpar skulu á 6 mánaða fresti tilgreina 1 áheyrnarfulltrúa úr hópi starfsmanna með tillögurétt til setu á stjórnarfundum. Enginn skal sitja lengur samfellt í stjórn Geðhjálpar en í 6 ár.
9. gr.
Stjórn félagsins skiptir með sér verkum eins og þurfa þykir.
Formaður boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim, en skylt er honum að boða fund að ósk þriggja stjórnarmanna félagsins. Stjórnarfundur er lögmætur, ef meirihluti stjórnarmanna er mættur. Stjórn setur sjálf nánari reglur um starfshætti og tíðni stjórnarfunda.
Á stjórnarfundum ræður afl atkvæða. Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins milli aðalfunda og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Undirskrift formanns og meðstjórnenda skuldbindur félagið. Jafnframt getur stjórn falið einstökum mönnum umboð vegna tiltekinna málefna og falið þeim að inna af hendi störf í þágu félagsins, og einnig skipað sérstakar nefndir í því skyni.
10. gr.
Auk stjórnar geta starfað stuðningshópar og hópar sem starfa að sérstökum verkefnum. Hópar þessir eru öllum opnir, en stjórn Geðhjálpar getur skipað fulltrúa í hópana.
11. gr.
Reikningar félagsins skulu fullgerðir svo fljótt sem unnt er og liggi frammi einni viku fyrir aðalfund til athugunar fyrir félagsmenn. Reikningsár er almanaksárið.
Reikningar félagsins skulu kannaðir og eða endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda.
12. gr.
Tillögur um að slíta félaginu eða sameina það öðru félagi öðlast því aðeins gildi, að þær séu ræddar og samþykktar á tveimur félagsfundum í röð, með ekki minna en eins mánaðar millibili, og sé annar þeirra aðalfundur. Þarf jafnframt sama atkvæðamagn og við lagabreytingar.
Löginn samþykkt með áorðnum breytingum,
á aðalfundi Geðhjálpar 27. mars 2010.