Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
fimmtudagur, 9 september 09 2010
A A A
Starfsemin



Hér til vinstri er hægt að nálgast helstu þætti í starfi Geðhjálpar. Auk þess að bjóða upp á hádegismat alla daga vikunnar eru þeir póstar sem byggt er á sem hér segir:

Félagsmiðstöðin sem er ætlað að aðstoða við að rjúfa félagslega einangrun, styðja og styrkja einstaklinga í trú á eigin getu og hæfileika.
 
Ráðgjöf sem miðar að stuðningi og frumgreiningu vanda, ásamt fræðslu. Einnig er hægt að koma kvörtunum vegna þjónustu tengda geðröskunum / geðfötlunum á framfæri við ráðgjafa.

Mötuneyti þar sem framreiddur er matur í hádeginu

Sjálfshjálparhópar þar sem einstaklingar geta fundið stuðning annarra í sömu sporum.

Hagsmunabarátta og réttindagæsla til handa einstaklingum og hópum er stór þáttur í starfi Geðhjálpar. Ef þú hefur áhuga á að vita meira um þann þátt starfseminnar er þér velkomið að senda okkur póst eða hringja í 570-1700. 

Þjónustukort
Dagatal
« September - 2010 »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp