Hjá Geðhjálp er starfandi fagmenntaður ráðgjafi sem ætlað er að veita eftirfarandi þjónustu við fólk með geðraskanir og aðstandendur þeirra:
- Stuðnings- og matsviðtöl, sem miða að því að skilgreina vanda, veita upplýsingar og leiðbeiningar um viðeigandi úrræði eða meðferð.
- Eftirfylgni bæði í formi símtala, viðtala sem og tölvupósts.
- Stuðningsviðtöl fyrir gesti hússins, starfsfólk og aðra sem þess óska.
- Móttaka kvartana vegna þjónustu
Ráðgjöfin getur farið fram með viðtali, símtali og tölvupósti. Henni er ætlað að vera leiðbeinandi en er ekki hugsuð sem meðferð eða vera meðferðarígildi.
Ráðgjafi og framkvæmdastjóri Geðhjálpar taka á móti athugsemdum vegna þjónustu sem snýr að einstaklingum með geðraskanir / geðfatlanir og aðstandendum þeirra.
Viðtöl eru veitt virka daga. Sé óskað eftir viðtali við ráðgjafa Geðhjálpar er best að hringja eða senda tölvupóst og panta tíma. Þessi tilhögun kemur i veg fyrir að farin sé fýluferð og til að fyrirbyggja langa bið.
Ef þú vilt panta tíma hafðu samband við okkur með því að:
Hringja í síma 570 1700 kl. 9-15 á virkum dögum eða senda okkur póst.
Auðvitað er alltaf hægt að koma við á hjá okkur að Túngötu 7 í Reykjavík kl. 9-15 á virkum dögum þó ekki nema til að fá kaffisopa.
Til að taka af allan vafa þá er ráðgjafi Geðhjálpar bundinn þagnarskyldu, hvernig svo sem vitneskja um persónulega hagi einstaklinga berst sem leynt á að fara samkvæmt lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992, lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og 136 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Stundum hefur Geðhjálp tekið að sér að reka erindi einstaklinga og hópa við lögbæra aðila, t.a.m. vegna misbrests á þjónustu eða meintra lögbrota gagnvart einstaklingum með geðraskanir / fatlanir. Ef Geðhjálp ber fram eða fylgir eftir málum til lögbærra aðila, skal liggja fyrir því skriflegt samkomulag við hlutaðeigandi. Í þessu umboði felst heimild til íhlutunar og á stundum heimild til móttöku trúnaðargagna um og fyrir viðkomandi.
Skýrslur vegna starfa ráðgjafa
Störf ráðgjafa 1. janúar til 30. júní 2009
Skýrsla (460 Kb pdf skrá)
Störf ráðgjafa 1. júlí til 31. desember 2008
Skýrsla (964 Kb pdf skrá)