Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
fimmtudagur, 9 september 09 2010
A A A
Sjálfhjálparhópar


Geðhjálp hefur veitt sjálfhjálparhópum húsnæði til afnota fyrir starfsemi sína. Sjálfshjálparhópur er hópur fólks sem deilir svipaðri lífsreynslu. Í slíkum hópi skapast oft sérstakt andrúmsloft samkenndar, skilnings og öryggis. Það að deila reynslu og vonum gerir fólki kleift að sýna gagnkvæman stuðning og gefa góð ráð.

Hugmyndafræðin að baki byggir á sjálfshjálp með samhjálp. Lögð er áhersla á samkennd og virðingu, að miðla reynslu, að hlusta og að eiga góða stund saman. Hver meðlimur hópsins ber ábyrgð á því að halda hópnum gangandi og að spjara sig sjálfur. Í sjálfshjálparhópi eru allir jafnir - allir meðlimir hópsins búa yfir þekkingu sem nýtist við að taka á sameiginlegum viðfangsefnum. Í hópunum finnur þú tilfinningalegan stuðning, upplýsingar, ráðgjöf og vináttu. Í góðum sjálfshjálparhóp ber fólk umhyggju fyrir hvort öðru og lítur eftir náunganum og heilsufari annarra hópmeðlima. Fólk hittist á jafningjagrundvelli og allar upplýsingar sem koma fram innan hópanna eru trúnaðarmál.

Hóparnir eru öllum opnir og vakin er athygli á því að slíkir hópar eru starfandi víðsvegar um landið. 

Hafir þú áhuga á að stofna sjálfshjálparhóp eða ef þú vilt frekari upplýsingar, vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á gedhjalp(hja)gedhjalp.is eða hringdu í okkur í síma 570-1700 kl. 9-15 virka daga.

Geðhjálp hefur sett saman handbók fyrir sjálfshjálparhópa en hún svarar ýmsum spurningum varðandi stofnun og skipulag þeirra.

Hægt er að nálgast hana með því að smella á tengilinn hér að neðan.

Handbók fyrir sjálfshjálparhópa (420 kB pdf skrá).


--------------------------------------------------------------------------------

Nokkrir sjálfshjálparhópar hittast í húsnæði Geðhjálpar að Túngötu 7. Að gefnu tilefni er rétt að taka það fram að þessir hópar eru ekki á ábyrgð eða undir umsjá / eftirliti Geðhjálpar. Þeir hópar sem hittast aðTúngötu 7 eru sem hér segir: 

DRA - hópur hittist í húsnæði Geðhjálpar milli kl 13 til 14 á þriðjudögum.

Félagsfælnihópur hittist í húsnæði Geðhjálpar milli kl 20 og 21:30 á miðvikudögum

Geðhvarfahópur hittist í húsnæði Geðhjálpar milli kl 20:30 og 22 á fimmtudögum

Geðklofahópur hittist í húsnæði Geðhjálpar milli kl 13:30 og 14:30 á föstudögum

Þunglyndishópur hittist í húsnæði Geðhjálpar milli kl 20 og 21:30 á þriðjudögum


--------------------------------------------------------------------------------

Þjónustukort
Dagatal
« September - 2010 »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp