Meðvirkni er hugtak sem fyrst og fremst hefur þróast í kringum hegðun og samskiptaform sem skapast milli aðstandenda annars vegar og áfengis og / eða vímuefnasjúklinga hins vegar. En það má sjá þessi form samskipta hjá aðstandendum langveikra, hjá fjölskyldum þar sem geðrænir erfiðleikar hafa knúið dyra og þar sem einn aðili innan fjölskyldu er ráðandi.
Í sinni einföldustu mynd má segja að meðvirkni feli í sér að einstaklingur tekur þarfir annars (annarra) fram yfir sínar eigin. Forsendur slíkrar skekkju í forgangsröðun eru tilfinningaleg tengsl við viðkomandi einstakling, sem er oftar en ekki ráðandi innan fjölskyldunnar. Meðvirkni er ekki í sjálfu sér einfalt fyrirbrigði heldur hegðunarmynstur í bland við viðhorf sem skapast yfir langt tímabil. Sá meðvirki missir stundum hluta sjálfstæðar sjálfsmyndar og skilgreinir sig út frá viðmiðum annarra. Slíkt kemur fram í:
- Þörf fyrir ytri staðfestingu á eigin ágæti
- Þörf fyrir að allir séu sáttir (líði vel)
- Krafa um að aðrir geti lesið og komið til móts við vanlíðun þess sem er meðvirkur
- Að vera tilfinningalega háður atburðum í umhverfi sínu
- Upplifa sig í þeim aðstæðum að þurfa að hafa skoðun og afskipti af öllu, eða að umhverfið sé stöðugt að toga í viðkomandi
Kannski er kjarninn fyrst og fremst skortur á tengslum við eigin tilfinningar og þar með kviknar tómleikatilfinning. Sumir reyna að fylla upp í þennan tómleika með því að lifa sig inn í líf annarra. Fylgifiskur þessa er að sjálfsvirðing er oft of takmörkuð og sjálfsálit fallvalt.
Hér að neðan eru tvær greinar um meðvirkni á pdf formi. Mælt er með að þær séu prentaðar út. Til að þær nýtist sem best þá er gott að nota merkipenna til að merkja við það sem á vel við þig lesandi góður.
Meðvirkni - fjölskyldusjúkdómur eftir Percy B. Stefánsson (80 Kb pdf skjal). Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.
Meðvirkni eftir Kristjönu Millu Snorradóttur iðjuþjálfa og Jóhönnu Ingvarsdóttur fv. blaðamann Mbl. (47 Kb pdf skjal). Birt með góðfúslegu leyfi höfunda og ritstjórnar Morgunblaðsins.