Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
miðvikudagur, 8 september 09 2010
A A A
Aðrir fjölskyldumeðlimir



Misbrestur í geðheilsu innan fjölskyldu - foreldrar og börn; þetta er í raun tvíhliða vandi. Annars vegar þegar foreldri eða foreldrar veikjast og hins vegar þegar börn innan fjölskyldunnar veikjast. 

Þegar foreldri veikist
Í fjölskyldum þar sem annað foreldrið glímir við geðröskun eða geðfötlun riðlast oft hlutverk fjölskyldumeðlima. Sá veiki tekur mikla orku og tíma annarra fjölskyldumeðlima. Áhyggjur af líðan, gerðum eða vangerðum þess veika geta orðið tímafrekar og valdið vanlíðan.

Þegar foreldri veikist er það oft óvissan sem veldur börnunum áhyggjum, auk skammar og þess feluleiks sem fylgir veikindum af geðrænum toga. Börnin hlaupa undir bagga með heimilisverk og ábyrgðir. Þarfir þeirra hverfa í skugga þarfa þess sem er veikur. Félagsleg samskipti barnsins minnka, þau hætta að bjóða vinum heim og í sumum tilfellum hætta þau að sækja til vina, m.a. vegna skyldurækni við hið veika foreldri. Í sumum tilfellum forðast þau heimili sitt vegna vanlíðunar. Hér á sér stað þróun hegðunar einstaklings / a í erfiðum aðstæðum, en ekki fyrirfram ákveðin viðbrögð við aðsteðjandi vanda.

Fyrir það foreldrið sem ekki er veikt er mikilvægt að hafa í huga að börnin á heimilinu þurfa í raun meiri ástúð, fræðslu og tillitssemi en gengur og gerist með börn almennt. Þau þurfa að fá vitneskju um eðli veikindanna, að sjálfsögðu í samræmi við aldur. Þau þurfa tíma fyrir sig og tækifæri til að spyrja spurninga. Þessum spurningum er brýnt að svara af heiðarleika og trúmennsku. Hafið í huga að á vissum aldri eiga börn það til að eigna sér bæði meiri getu og ábyrgð en þau geta staðið undir. Því er mikilvægt að fræða börn um eðli geðsjúkdóma, aðferðir til lækninga og síðast en ekki síst að þau geta ekki borið ábyrgð á sjúkdómnum. Gefið börnunum tíma til að vera börn, skapið svigrúm fyrir þau til að njóta þess sama frelsis til leikja og önnur börn hafa. Mikilvægt er að þið leggið ykkur fram við að veita þeim hæfilega ábyrgð miðað við aldur og umfram allt fræðslu um eðli veikinda foreldris.

Þegar barn í fjölskyldu veikist
Algengt er að þegar barn veikist tapa önnur börn innan fjölskyldunnar athygli og umhyggju. Slíkt gerist þrátt fyrir bestu meiningar foreldranna. Veikindi kalla oft á yfirlegu og langvarandi áhyggjur af þeim veika eru til staðar. Slíkt dregur verulega úr getu foreldra til að sinna tilfinningalegum þörfum annara barna sinna. Önnur hætta sem skapast er að vegna þess að bróðir eða systir eru öðruvísi þá hættir barn að bjóða vinum heim. Þetta getur ýtt undir félagslega einangrun þeirra barna sem heilbrigð eru innan fjölskyldunnar.

Eins og rætt var um hér að ofan þá er brýnt að fræða börn um eðli geðraskana og að hve miklu leyti þau geta aðstoðað sem og borið ábyrgð á ástandinu. Enn sem fyrr er lögð áhersla á að slík fræðsla verður að taka mið af aldri barns og þeirri staðreynd að börnum hættir til að eigna sér getu, ábyrgð og áhrif sem þau hafa ekki til að bera eða eiga ekki bera.

Mikilvægt er að foreldrar skapi rými til samverustunda með þeim börnum sem heilbrigð eru. Að sinna þeim eftir bestu getu, fara í bíó, sund, sinna áhugamálum og öðru sem gefur foreldrum og börnum samverustund. Næði til að hlusta á og sinna þörfum þeirra barna sem ekki eru veik.

Hannes Jónas Eðvarðsson, sálfræðingur og félagsráðgjafi tók saman

Þjónustukort
Dagatal
« Oktober - 2010 »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 30 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 1 2 3 4 5 6
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp