Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
miðvikudagur, 8 september 09 2010
A A A
Aðstandendur


Þegar barn er þjakað af geðröskun setur það ávallt mark sitt á fjölskyldulíf þess. Varnarleysi barnanna gagnvart veikindum af þessum toga hefur íþyngjandi áhrif á þá sem að því standa.

Langflestir foreldrar sem eignast barn sem þarf mikinn stuðning ætla sér að standa sig. Þau breyta um áherslur í lífinu og lífið fer að snúast um veika barnið. Barnið þarf á umönnun að halda, jafnvel allan sólarhringinn og í allri umhyggjunni gleyma foreldrar að rækta sig sjálf og jafnvel önnur börn í fjölskyldunni. Til að foreldrar og systkini haldi heilsu er mikilvægt að þau fái tíma til að sinna eigin þörfum og löngunum.

Vakin er athygli á greininni aðrir fjölskyldumeðlimir en þar má lesa nánar um hverju getur verið gott að huga að.

Kerfið býður upp á ýmis úrræði til að hvíla börn og foreldra. Ekki eru þessi úrræði alltaf auðsótt en mikilvægt er að falast eftir þeim til að gefa barninu frí sem og aðstandendum þess.

Þjónustukort
Dagatal
« Oktober - 2010 »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 30 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 1 2 3 4 5 6
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp