Átraskanir barna eru af nokkrum toga. Þar er að finna ofát, lystarstol og lotugræðgi. Allt vandi sem hefur veruleg áhrif á líkama og líðan barnanna. Svo virðist sem tilfellum átröskunar (lystarstols og lotugræðgi) hafi farið fjölgandi á liðnum árum. Einnig hefur orðið aukning í offitu barna, en ekki er þar með sagt að öll of feit börn séu þjökuð af ofáti. Þar getur einnig lífsstíll og mataræði heima fyrir skipt máli.
Ofát
Einkennist í raun af markaleysi, stjórnleysi í að innbyrða mat, sælgæti eða vökva. Slík hegðun gerist oft í köstum þar sem matarvenjur viðkomandi breytast oft verulega. Hægt er að greina nokkra þætti sem einkenna ofát:
- Erfitt að hætta að borða, þrátt fyrir að vera orðin saddur / södd.
- Viðkomandi borðar mikið magn á skömmum tíma. Ágæt viðmiðun er að viðkomandi borðar meira en flestir við sömu eða svipaðar aðstæður.
- Þegar ofátkast er í gangi borðar viðkomandi mun hraðar en venjulega.
- Viðkomandi upplifir stjórnleysi þegar það kemur að því hve mikið magn af mat er borðað. Hann gerir ítrekaðar tilraunir til megrunar án þess að ná varanlegum árangri.
- Endurtekið ofát.
- Borðað í felum eða einrúmi.
- Safnar mat, á yfirfullan ískáp og skápa af mat.
- Felur tóm matarílát.
- Verður miður sín, upplifir depurð og ógeðistilfinnigu og skömm gagnvart sjálfum sér fyrir að hafa ekki stjórn á því hve mikið er borðað.
- Þunglyndi eða kvíði geta verið fylgifiskar ofáts.
- Lágt sjálfsmat.
Þegar börn eru höfð í huga þá upplifa foreldrar oft að ef maturinn er ekki tekin frá barninu þá muni það borða þangað til allt er búið, sama hve mikið er í boði.
Lystarstol
Einstaklingur sem er þjakaður af lystarstoli leggur mikla vinnu í að vera undir kjörþyngd, helst langt undir kjörþyngd, iðulega með því að neita sér um mat eða gæta þess tryggilega að brenna mun fleiri hitaeiningum en borðað var. Þessi sjúkdómur hefst oftast á táningsárunum (milli 14 og 18 ára aldurs). Sjaldgæft er að hann hefjist fyrir kynþroska. Sjúkdómurinn getur verið viðvarandi, komið í skorpum (oft tengt álagi) eða staðið yfir í ákveðið tímabil þar sem bati fylgir í kjölfarið. Nánari upplýsingar um lystarstol er að finna hér.
Lotugræðgi
Einstaklingur sem glímir við lotugræðgi á það til að oféta og síðan viðhefur hann ýmsa hegðun til að losna við þá aukaþyngd sem ofátið getur haft í för með sér. Þessi hegðun felur m.a. í sér að framkalla uppköst, nota hægðalosandi lyf og ofsakennd líkamsrækt. Nánari upplýsingar um lotugræðgi er að finna hér.