Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
miðvikudagur, 8 september 09 2010
A A A
Kvíðaraskanir

Margir foreldrar kannast við aðskilnaðarkvíða hjá börnum sínum. Þetta er í sjálfu sér ekki óeðlilegur kvíði hjá barni, t.a.m. þegar foreldri skilur það eftir fyrstu dagana eftir að það byrjar á leikskóla. Þessi kvíði getur hins vegar farið úr böndunum og orðið til þess að skerða lífsgæði barns og foreldra til muna. Þegar litið er til þess hvort barn sé í jafnvægi eða ekki er gott að hafa í huga hvort hegðun þess sé í samræmi við aldur eða ekki. Ef 10 ára gamalt barn sest niður og grætur þegar foreldrar fara út úr húsi er það að öllu jöfnu ekki að sýna hegðun sem er í samræmi við aldur. Barn sem ítrekað sýnir hegðun sem ekki er í samræmi við aldur getur átt við geðræna erfiðleika að etja, t.a.m kvíðaröskun.

Kvíði hjá börnum er líklega með algengari geðröskunum sem þjaka börn. Kvíði getur verið af mörgum toga eins og hjá fullorðnum. Algengustu kvíðaraskanir barna eru sem hér segir:

  • Almenn kvíðaröskun
  • Flemturröskun
  • Aðskilnaðarkvíðaröskun
  • Þráhyggju- árátturöskun
  • Áfallastreituröskun
  • Félagsfælni
  • Sértæk fælni

Ástæða kvíðaraskana er ekki alveg kunn, en erfðir og atburðir í lífi einstaklings spila saman við myndun kvíða. Einkenni kvíða eru nokkurn veginn eins milli aldurshópa, en birtingarmynd kvíða er mismunandi milli aldurshópa.

  • Birtingarmynd kvíða hjá ungum börnum getur verið sú að barnið hangir mikið utan í foreldri sínu (klessu-samband) og grætur af minnsta tilefni.
  • Ungmenni / unglingar eiga það til að kvarta um magaverk / neita að fara í skóla eða eru stöðugt að skorast undan verkefnum eða samneyti við aðra.
  • Fullorðnir geta upplifað miklar áhyggjur, svefntruflanir og tilhneigingu til að einangra sig.

Þegar hugað er að því hvort barn sé þjakað af kvíðaröskun er í raun árangursríkast að athuga hvort barnið sýnir óeðlilega oft hegðun sem ekki samræmist aldri þess.

Til að lesa nánar um kvíða smellið hér.

Fyrir þá sem vilja kynna sér þetta betur þá smella á bækling um Kvidaraskanir_barna.pdf. (780 Kb pdf skrá).

Hannes Jónas Eðvarðsson, sálfræðingur tók saman.

Þjónustukort
Dagatal
« Oktober - 2010 »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 30 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 1 2 3 4 5 6
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp