Óyndi (depurð) er ekki ósvipað andlegt ástand og þunglyndi. Munurinn liggur í því að óyndi er vægara en þunglyndi en varir lengur. Til að hægt sé að tala um óyndi þarf einstaklingur að uppfylla 2 greiningarviðmið þunglyndis auk þess sem að þessi einkenni þurfa að hafa verið viðvarandi til lengri tíma. Oft rætt um 2 ár hjá fullorðnum og 1 ár hjá börnum. Óyndi barna getur stafað af mörgum þáttum þ.m.t. uppeldisaðstæðum, einelti, erfðafræðilegum ástæðum og þannig mætti lengi telja. Greiningarviðmið þunglyndis
Til þess að hægt sé að tala um óyndi hjá börnum þurfa þau að uppfylla tvö greiningarviðmið af ofangreindu til lengri tíma. Ekki má rugla saman breytingum á svefni við oft eðlilega þörf unglinga fyrir aukinn svefn. Einnig er vert að foreldrar hafi augun opin fyrir því að einkenni óyndis geta verið í tengslum við neyslu vímuefna eða ástarsorgar. Hannes Jónas Eðvarðsson, sálfræðingur tók saman. |
Óyndi / depurð




