Einkenni Tourrette eru kækir, bæði í hegðun og málfari. Fyrstu einkenni sjúkdómsins koma fram á aldursbilinu 2-16 ára og birtast oft fyrst sem tíðar, endurteknar og ósjálfráðar hreyfingar, kippir. Helst marka menn byrjun sjúkdómsins á kækjum í andliti, svo sem blikk augna, fitja upp á nef eða gretta sig í tíma og ótíma. Oftast ná kækir til fleiri en eins líkamshluta. Að meginstofni er um ósjálfráðar hreyfingar að ræða. Þær geta verið spörk, stapp, hopp, smella fingrum, smella í góm. Þessu getur síðan fylgt önnur einkenni svo sem þörf fyrir að snerta allt sem í vegi er. Tourrette getur einnig fylgt áráttukennd hegðun. Ytri birting þessarar hegðunar er að vera sífellt að athuga hvort hurð sé læst, eða hvort slökkt sé á eldavélinni. Innri birting er í formi síendurtekinna hugsana. Málfars- eða raddkækir eru einnig til staðar. Þeir geta verið undanfari eða eftirmáli ósjálfráðra hreyfinga, svo sem stapps. Þó er einnig þekkt að þeir eigi sér stað án beinnar tengingar við aðra hegðun í tíma. Þessir kækir geta verið margbreytilegir, má nefna stunur, öskur, hvæs, hnussa, bölva eða jafnvel bara sjúga upp í nefið. Til eru hegðunarmynstur sem lýsa sér helst sem bergmál eða hermihegðun. Þar sem einstaklingurinn endurtekur orð annarra eða hermir eftir hegðun annarra. Um helmingur þeirra sem eru með Tourrette þróa með sér einhvern tíma á ævinni svo kallaðan sorakjaft, þar sem viðkomandi bölvar eða klæmist ósjálfrátt í tengslum við kækmyndun sína. Allir sem þjakaðir eru af Tourrette hafa ósjálfráðar hreyfingar og einhverskonar raddkæki. Einkenni Tourrette aukast og dvína til skiptis. Þróun verður í einkennum þar sem nýir koma í stað eða bætast við gömlu kækina. Ánægjulegt athæfi getur dregið úr kækjunum, jafnvel horfið á tímabilum. Dæmi eru til um að bata hafi verið náð þegar einstaklingurinn fullorðnast. Nánar má fræðast um Tourrette sjúkdóminn á heimasíðu Tourrette-samtakanna á Íslandi. Tekið saman af Hannesi Jónasi Eðvarðssyni, sálfræðingi. Stuðst var við upplýsingar af vefsíðu Tourrette-samtakanna á Íslandi auk DSM IV TR. |
Tourette




