Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
fimmtudagur, 9 september 09 2010
A A A
Ofvirkni

Ofvirkni barna er umræða sem er á undanhaldi. Það er hverfandi að rætt sé um að börn séu bara ofvirk, heldur er iðulega rætt um ofvirkni í sambandi við athyglisbrest með ofvirkni (ADHD).

En hvernig lýsir ofvirkni sér?

Einstaklingur sem er ofvirkur virðist aldrei geta verið kyrr. Viðkomandi barn er alltaf á iði, talar mikið og á erfitt með að sitja á sér. Það að sitja kyrr í kennslustundum eða dvelja við einhæft verk er nánast útilokað fyrir einstaklinga með ofvirkni. Barn með ofvirkni sem á að sitja kyrrt í kennslustund reynir að fá útrás fyrir hreyfiþörf sína með því að dangla fótum, slá taktinn, snerta allt sem er í kringum það, fikta í fötum eða hári. Það er barninu líkamlega erfitt að vera kyrrt í sæti sínu. Þegar rætt er við fullorðna ellegar unglinga sem eru ofvirkir þá kemur hugtakið eirðarleysi iðulega upp í umræðuna. Þessir einstaklingar ræða um mikið og knýjandi eirðarleysi, þörf fyrir að vera að gera eitthvað, jafnvel að þurfa að koma mörgu í verk samtímis.
 
Einstaklingur með ofvirkni á oft erfitt uppdráttar í hefðbundnu skólakerfi. Hegðun viðkomandi dregur athygli að honum, hún er truflandi fyrir aðra og veldur því stundum að viðkomandi verður fyrir aðkasti annarra. Því er ekki óalgengt að börn sem teljast ofvirk upplifi sig öðruvísi en önnur börn. Afleiðingar geta því verið kvíði fyrir að mæta í skóla, einelti, félagsfælni og slök sjálfsmynd.

Greining

Greining ofvirkni á sér stað með matskvörðum þar sem mat nátengdra aðila á hegðun barnsins er borin saman við mat á börnum í sama aldurshópi. Ekki eru til nein líffræðileg próf til að greina ofvirkni. Líkur benda til þess að ofvirkni sé fimm til sex sinnum tíðari hjá náskyldum ættingjum hins ofvirka. Strákar eru mun líklegri til að vera ofvirkir en stúlkur. 
Rétt er að hafa í huga að ofvirkni kemur iðulega fram fyrir 7 ára aldur barna.

Eins og fyrr er gott að minna aðstandendur og þá sem greindir hafa verið með ofvirkni að leita uppi styrkleika sína.

Byggt á:
Gísli Baldursson, Ólafur Ó. Guðmundsson og Páll Magnússon: Ofvirkniröskun: yfirlitsgrein, Læknablaðið, 6. tbl., 86. árgangur, júní 2000.

Páll Magnússon, sálfræðingur af síðu landlæknis. Greinina má nálgast neðst á þessari síðu.

Þjónustukort
Dagatal
« September - 2010 »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp