Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
miðvikudagur, 8 september 09 2010
A A A
ADHD

Athyglisbrestur með ofvirkni er sú geðröskun sem hvað best er þekkt hjá börnum. Hvað veldur því að einstaklingur sýnir einkenni ADHD er eitthvað sem fræðimenn eru ekki á eitt sammála um. Til eru þeir sem segja að ADHD stafi af brenglun í boðefna jafnvægi heilans. Innan þess hóps eru menn heldur ekki sammála. Aðrir segja að ADHD sé eitthvað sem "lærist", það er óstöðuleiki í uppeldisaðstæðum, styrking hegðunar sem skapar stöðugt hærri áreitisstuðul valdi því að ADHD myndast. Loks er það þriðja stefnan sem telur ADHD vera samspil erfða og umhverfis. Hér er lagt til grundvallar að einstaklingar eru í grunnin með tilhneigingu til að þurfa mikið áreiti. En uppeldisskilyrði miðla ekki þeim aðstæðum sem til þarf til að byggja upp þá sjálfstjórn sem þörf er til að hemja umrædda hegðun. Með öðrum orðum uppeldisskilyrði styðja einstaklinginn ekki nægilega til þess að tileinka sér viðurkennda hegðun.

Hvað sem veldur þá er ADHD hamlandi og geta skert lífsgæði viðkomandi einstaklings verulega. Fyrir utan þá truflun sem slík hegðun hefur í för með sér.

Athyglisbrestur

Einstaklingur með athyglisbrest á erfitt með að einbeita sér að ákveðnum verkefnum til lengri tíma, sér í lagi ef verkefnin eru einhæf. Heimanám er kannski þekktasta dæmið þar um. Nánar er hægt að lesa um athyglisbrest hér.

Ofvirkni

Oft rætt um hreyfióróleika. Einstaklingur á erfitt með að vera kyrr. Mikil hreyfiþörf sem fær útrás, þannig að einstaklingur er allur á iði, talar mikið og oft hátt.

Hvatvísi

Það að bíða eftir einhverju, fresta ánægju er einstaklingum sem eru hvatvísir ofviða. Þeir þurfa að fá það sem hugurinn girnist ekki síðar en strax.

Eins og gefur að skilja þá er sambland þessara þriggja eiginleika ekki farsælt veganesti fyrir einstakling í samfélagi okkar.

Ekki missa sjónar af því að þeir sem falla undir þessa greiningu búa yfir styrkleikum sem vert er að huga að og veita brautargengi.

Mikið hefur verið fjallað um uppeldi barna með ofvirkni og athyglisbrest. Hér má nálgast ráðgleggingar sem gagnast geta við uppeldi barna sem falla undir þá greiningu.

Þjónustukort
Dagatal
« Oktober - 2010 »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 30 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 1 2 3 4 5 6
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp