Félagsmiðstöð Geðhjálpar er opin alla virka daga frá kl 9-14. Þar er boðið upp á aðgang að tölvuveri, billjard, listsmiðju, bókasafni og hljóðfærum.
Vikudagskráin er hér
30-6.xls
Hjá Geðhjálp starfar umsjónarmaður félagsmiðstöðvar en hlutverk hans er að virkja notendur. Hlustað er eftir áhuga og getu hvers og eins, en þeir sem hafa áhuga á að komast í einhverskonar virkni geta haft samband við umsjónarmann og í sameiningu eru sett raunhæf markmið fyrir viðkomandi. Virkni notenda er einnig leiðarljós þegar kemur að því að skipuleggja starfið, þar sem leitast er við að virkja notendur Geðhjálpar til að koma með hugmyndir um dagskrá og þá virkni sem boðið er upp á hverju sinni.
Af þessum sökum er dagskrá Geðhjálpar lifandi. Þó eru nokkrir fastir punktar í henni. Alltaf er eitthvað um að vera í listsmiðjuni í hverri viku, samsöngur, gönguhópur, sjónvarpskvöld, húsfundir og fleira.
Listsmiðjan: Ýmislegt hefur verið í boði í listsmiðjuni og má þar nefna leiðsögn í myndlist, mósaíkkennslu og gifsmálun.
Samsöngur hefur verið í gangi hjá okkur undanfarið á þriðjudögum kl 11 – 12 og hefur Smári Eiriksson séð um undirspil og syngur hver með sínu nefi.
Gullkornastund er aðra hvora viku en miðbæjarpresturinn, sr. Þorvaldur Víðis, á þar notalega stund með gestum okkar þar sem þau hugleiða valið efni, ásamt því að taka sönginn.
Gönguhópur hittist einu sinni í viku, á fimmtudögum kl 14, og leggur hann af stað frá Geðhjálp og er ákveðið hverju sinni hvert ferðinni er heitið.
Sjónvarpskvöld hafa verið haldin vikulega.
Sérstakir viðburðir: Aðrir sérstakir atburðir sem við höfum boðið uppá er lifandi tónlist með Herberti Guðmundssyni, kvennakvöld, sjóstangveiði og fyrirlestrar með fræðandi efni. Þar má nefna að þýðandi bókarinnar Meltingarvegurinn og geðheilsan, Jóhanna Mjöll Þórmarsdóttir, kom til okkar og sagði sína reynslu af breyttu mataræði, Sigursteinn Másson talaði um andlega sjálfsvörn og haldnir voru fyrirlestrar fyrir aðstandendur geðsjúkra. Einnig hafa hin ýmsu 12 spora samtök komið og kynnt starfsemi sína.
Komandi haust. Frá og með haustinu 2009 byrjum við aftur á 12 spora kynningum en fjöldinn allur af 12 spora samtökum eru til á Íslandi og munu þau kynna sig hvert fyrir sig á miðvikudögum kl 13. Þar má nefna ástar- og kynlífsfíkn, skuldafíkn, spilafíkn, átraskanir, meðvirkni og alkóhólisma. Hefur þessum fyrirlestrum verið einstaklega vel tekið. DRA samtökin ( Dual recovery ) eru með fundi sína í húsi Geðhjálpar og hafa þeir verið haldnir á þriðjudögum kl 13 – 14.
Leitast er við að hafa dagskrá félagsmiðstöðvarinnar lifandi og vikulega er send út ný dagskrá.
Verið hjartanlega velkominn.