Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
fimmtudagur, 9 september 09 2010
A A A
Ofvirkni með athyglisbrest

Einstaklingar með ADHD sem ekki hafa lært á sjálfa sig glíma við lélega sjálfsmynd, og þekkja lítið eða ekkert styrkleika sína. Þeir geta verið uppteknir af því hvað öðrum finnst um þá, og hvað aðrir vilja að þeir geri með líf sitt. Þeir eiga gjarnan erfitt með að festa sig í vinnu og missa jafnvel fljótt áhuga á viðfangsefnum ellegar fá fljótt leið á því sem þeir eru að gera. Mjög algengt er að einstaklingar með ADHD ánetjist fíknum. Þar má nefna drykkju, fíkniefnamisnotkun, ofát, skuldafíkn, ástar og kynlífsfíkn og spilafíkn. Í þeim tilfellum er mikilvægt er að ná tökum á fíkninni, því að hún mun alltaf standa í vegi fyrir því að einstaklingurinn geti unnið með sjálfan sig.

ADHD er skilgreint sem taugaröskun: athyglisbrestur með eða án ofvirkni. 
Einkenni ADHD:

  • Erfitt með að byrja á verkefnum / klára verkefni
  • Erfitt með að slíta sig frá áhugaverðum verkefnum 
  • Einbeitingarskortur 
  • Á erfitt með að meðtaka fyrirmæli 
  • Hugar illa að grunnþörfum eins og mataræði, svefni og hreyfingu 
  • Svefnóregla, ónógur svefn 
  • Fullkomnunarárátta, frestunarárátta, þráhyggjur 
  • Léleg sjálfsmynd 
  • Erfiðleikar með að setja sér markmið 
  • Margar hugmyndir en framkvæmir fátt 
  • Áhættuhegðun 
  • Fíknir 
  • Kvíði, þunglyndi 
  • Léleg tímastjórnun 
  • Erfiðleikar með að taka ákvarðanir 
  • Innri óróleiki 
  • Getur ekki setið kyrr 
  • Fjármálaóreiða 
  • Óreiða inn á heimili, einkalífi, vinnu 
  • Erfiðleikar með nám

Hafa ber í huga að ýmsir þættir geta valdið einkennum sem svara til einkenna ADHD t.d svefnraskanir, kæfisvefn, vímuefna- og áfengisneysla, innkirtlasjúkdómar, t.d skjaldkirtilsóregla, heilaskaði og fæðuofnæmi svo eitthvað sé nefnt.

Til að ná góðum tökum á lífi sínu þarf einstaklingurinn að læra að þekkja styrkleika sína en þeir gegnd veigamiklum þætti í velgengni í lífinu. Með val á viðfangsefnum sem tengjast styrkleikum getur einstaklingurinn átt auðveldara með að einbeita sér og sjálfsmyndin styrkist. Auðveldara er að taka skýra stefnu ef styrkleikar fá að ráða för. En mikilvægt er að halda sér vel að efninu og að einstaklingurinn rifji reglulega upp hvert hann er að stefna og hvaða markmið hann hefur sett sér, því að þegar á móti blæs er auðvelt að gleyma stefnunni svo og styrkleikunum.

Markþjálfun og sálfræðimeðferð hefur gefið góða raun fyrir fólk með ADHD. Í markþjálfun skoðar einstaklingurinn styrkleika sína, stefnu og markmið ásamt því að skoða hvaða fyrirstöður er í veginum til að viðkomandi nái að klára eða hefja verkefnin. Vinna með skipulag og jafnvægi er oft mikilvægt. Þrír veigamiklir þættir sem hafa áhrif á einbeitingu eru svefn, reglulegt mataræði og hreyfing. TIL að bæta einbeitingu er mikilvægt að einstaklingurinn hugi vel að því að fá nægilegan svefn, borði reglulega yfir daginn og borði hollan mat og temji sér reglubundna hreyfingu. Nýlegar rannsóknir sýna að sum E- efni í mat ýta undir ofvirkni. Einnig er gott að takmarka neyslu á sykri og kaffi. Leiddar hafa verið líkur að því að Omega 3 geti haft jákvæð áhrif á einbeitingu.

ADHD hefur marga góða kosti í för með sér og má þar nefna að fólk með ADHD fær gjarnan góðar hugmyndir, er fljótt að hugsa og er mjög glaðlynt.

Tekið saman af Sigríði Jónsdóttur, markþjálfa

Nánar má lesa um ofvirkni með og án athyglisbrests á vefnum undir leitarorðunum:

Athyglisbrestur með ofvirkni
Ofvirkni
ADHD (íslenska)
Attention deficit hyperactive disorder
ADHD (enska)

Þjónustukort
Dagatal
« September - 2010 »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp