Velkominn(n) á vef Geðhjálpar
miðvikudagur, 8 september 09 2010
A A A
Starfsendurhæfing

Starfsendurhæfing er mikilvægt skref í átt að aukinni virkni í samfélaginu, skref í átt að bata. Hér að neðan er yfirlit yfir úrræði sem hafa starfsendurhæfingu að leiðarljósi.

Hringsjá
Staðsetning er að Hátúni 10d. Símar: 562-2840 og 552-9380
Hringsjá er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla.
Heimasíða: Hringsjá
Tölvupóstfang: rlinda(hja)hringsja.is

Janus endurhæfing ehf
Staðsett í Vörðuskólanum, Egilsgötu, Reykjavík. Sími 514-9175.
Janus hefur að leiðarljósi að sameina krafta sem flestra aðila í þjóðfélaginu þannig að hægt sé að bjóða upp á samræmda þjónustu í atvinnuendurhæfingu. Starfsemin er fjölbreytt og er fyrir einstaklinga sem vegna heilsubrests eru að/eða hafa þurft að hverfa frá vinnumarkaðnum eða úr námi og vilja komast út í atvinnulífið. Janus endurhæfing ehf. er í samstarfi við Tækniskólann, skóla atvinnulífsins
Heimasíða: Janus

Múlalundur
Staðsetning: Hátún 10C. Símar: 562-8500 og 562-8501.
Múlalundur er stærsta og elsta öryrkjavinnustofa landsins þar sem öryrkjar njóta endurhæfingar ásamt því að framleiða og selja mest allra af bréfabindum og lausblaðabókum.
Heimasíða: Múlalundur 

Vesturafl 
Staðsetning: Mánagata 6, Ísafirði, sími 456 4406
Vesturafl er starfsendurhæfing fyrir fólk með skert lífsgæði sem vegna veikinda eða aðstæðna getur ekki tekið virkan þátt í samfélaginu, í vinnu eða inni á heimili.
Heimasíða: Vesturafl

Starfsendurhæfing Hafnarfjarðar 
Staðsetning: Hjá Námsflokkum Hafnarfjarðar - Símenntunar-miðstöð í Gamla Lækjarskóla sem nú heitir Menntasetrið við Lækinn. Hjá Starfsendurhæfingu Hafnarfjarðar fer fram atvinnuleg endurhæfing.
Heimasíða: SEH 

Starfsendurhæfing Vestfjarða 
Staðsetning: Þróunarsetrið, Árnagötu 2 - 4 á Ísafirði.
Starfsendurhæfing Vestfjarða hefur það að markmiði að veita einstaklingum á Vestfjörðum endurhæfingu til atvinnuþátttöku í heimabyggð. .
Heimasíða: SEV

Starfsendurhæfing Norðurlands 
Staðsetning: Glerárgata 36 Akureyri.
Markmið Starfsendurhæfingar Norðurlands eru að endurhæfa þátttakendur út í vinnu eða nám, auka lífsgæði þátttakanda og fjölskyldu hans og að endurhæfing fari fram í heimabyggð
Heimasíða: SEN

Þjónustukort
Dagatal
« Oktober - 2010 »
S M Þ M F F L
26 27 28 29 30 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 1 2 3 4 5 6
«
»

Opnunartími: 9:00-16:00 virka daga. Um helgar 11:00 - 13:00.
© 2009 Allur réttur áskilinn Geðhjálp