1. Fyrirlesturinn er hugsaður sem andsvar við tvíhyggju þ.e.a.s. aðgreiningu líkama og sálar. Fjallað er um leiðir til að vernda geðheilbrigði og varnir gegn neikvæðum hugsunum og áreiti í samskiptum fólks. Einnig er farið yfir hugrænar leiðir til að ná utan um eigið hlutverk og tilgang á mismunandi tímabilum í lífi fólks. Fjallað er um óttann og það sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Fyrirlesturinn hentar vel í upphafi vinnudags eða í hádegishléi vinnustaða, en hann er 35 mínútna langur. Boðið er upp á fyrirspurnir og umræður í samræmi við óskir. Gjald fyrir fyrirlesturinn er kr. 9.500- og fyrirlesari er Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar. 2. Geðhjálp býður efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskólanemum upp á fyrirlestur í andlegri sjálfsvörn. Áhersla er lögð á leiðir til heilbrigðs lífs og sérfræðingur fjallar um svefn, mataræði, hreyfingu og streitu. Inntak fyrirlestursins er í stórum dráttum sá hinn sami og í fyrirlestri 1. Boðið er samhliða upp á kynningu í hagnýtri sjálfsvörn sem tengir saman hina andlegu og hina líkamlegu hlið sjálfsvarnar. Andleg sjálfsvörn og líkamleg eiga það sameiginlegt að þær snúast um að meta og vinna með fjarlægð, tækni og nálægð. Áhersla er lögð á stöðumat einstaklingsins og aðferðir til að finna hvenær eigi að halda neikvæðri hugsun, viðfangsefni eða einstaklingi í fjarlægð og hvenær rétt er að taka mál föstum tökum. Fyrirlesturinn tekur 40 mínútur og kynning á hagnýtri sjálfsvörn 50 mínútur. Gjald fyrir fyrirlesturinn er kr. 10.000- og leiðbeinendur eru Sigursteinn Másson og Davíð Kristinsson, næringarráðgjafi og lífstílsþerapisti. Nánari upplýsingar og námskeiðspantanir eru í síma 570 1700. Einnig er hægt að hafa samband við Sigurstein Másson með því að smella á þennan tengil. Andleg sjálfsvörn – umsagnir.Lífeyrissjóður opinberra starfsmanna: Við hjá starfsmannafélaginu höfðum heyrt mikið lof um fyrirlestur Sigursteins „Andleg sjálfsvörn“ frá öðru fyrirtæki og báðum Sigurstein því að kíkja við hjá okkur einn morguninn. Gaman var að sjá að þessi hnitmiðaði fyrirlestur fór fram úr væntingum fólks og var viðfangsefnið mikið rætt í framhaldinu. Talað var um hversu áheyrileg og tímabær þessi umfjöllun væri og að hún hefði vakið fólk til umhugsunar á góðan hátt, m.a. með snjöllum myndlíkingum. Við hjá starfsmannafélagi LSR mælum hiklaust með „Andlegri sjálfsvörn“! Helgi Þór Jónsson, verkefnisstjóri Upplýsingatæknisvið Lundarskóli: Sigursteinn Másson kom á starfsmannafund í Lundarskóla þar sem hann ræddi um andlega líðan og sjálfsvörn okkar gegn vanlíðan á krepputímum. Okkur fannst umfjöllun hans sérstaklega góð og persónuleg. Hann náði því að kveikja neista í okkur öllum og umhugsun um hvernig við getum hlúð að okkur, hvert öðru og nemendum okkar. Þórhildur Helga Þorleifsdóttir skólastýra Brekkuskóli: Fyrirlestur Sigursteins var gott innlegg fyrir okkur starfsfólk Brekkuskóla. Fyrirlesturinn hreyfði hér við fólki og almenn ánægja var með hann og töluverð umræða er enn í gangi þar sem menn vitna til orða Sigursteins. Sigursteinn opnar fyrir fólki á einlægan hátt en án allrar væmni, glugga að eigin lífi og því sem hann þurfti að takast á við. Það er mitt mat að þessi fyrirlestur hafi hreyft við okkur um eigin þankagang og umgengni um okkar eigin andlegu heilsu. Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri Öldrunarheimilið Hlíf: Það komu 85 manns á fyrirlesturinn þinn, starfsmenn Öldrunarheimila Akureyrar og nokkrir íbúar. Það voru allir sammála um að þetta hafi verið frábær fyrirlestur. Hann var fræðilegur, auðskiljanlegur, einlægur og persónulegur og það hvatti fólk til að tjá sig á eftir. Einnig var hann myndrænn sem gerði hann áhugaverðari og líflegri og þú hélst athygli allra allan tímann. Þetta vakti fólk til umhugsunar um geðvernd, hversu mikilvæg andleg heilsa er okkur og mikilvægt að hugsa um hana ekki síður en líkamlega heilsu, sérlega á þessum erfiðu tímum. Það getur hent alla að veikjast einhvern tíma á ævinni og þá er gott að fólk standi saman. Helga Tryggvadóttir hjúkrunarforstjóri Fyrirlestur Sigursteins Mássonar, Andleg sjálfsvörn, í Rósenborg. Áhugaverður og einlægur fyrirlestur sem veitti góða innsýn inn í heim þess sem glímir við geðræn vandamál. Stendur upp úr umræðan um ábyrgð hvers og eins á sinni eigin heilsu og það að læra að hlusta á eigin líkama og virða þær viðvaranir sem hann sendir manni. Þetta var svona fyrirlestur sem náði til mín á meðan á honum stóð en síast betur og betur inn eftir því sem á líður og maður rekur sig á. Kristín Björk |
Andleg sjálfsvörn




