Styrkja GeðhjálpMeð því að styrkja Geðhjálp leggur þú samtökunum lið í baráttu fyrir hagsmunum þeirra sem þurfa á aðstoð að halda ef geðheilbrigði brestur, sem og aðstandenda þeirra. Geðhjálp eru frjáls félagasamtök sem treysta á fjárframlög frá einstaklingum, samtökum og fyrirtækjum til að viðhalda rekstrargrundvelli sínum. Gerast félagiFélagsmenn Geðhjálpar öðlast kosningarétt á aðalfundum samtakanna og geta þannig haft bein áhrif á stefnu og starfsemi félagsins. Félagsmenn greiða árgjald sem ákveðið er á aðalfundi hvers árs og er 2.000 krónur fyrir árið 2009. Gjalddagi árgjalds er 1. maí ár hvert. Geðhjálp hefur tvær aðrar fjáröflunarleiðir, sala minningarkorta og vefverslun þar sem m.a. eru seldir geisladiskar til styrktar félaginu. |
Þú getur hjálpað




